Pálína og Inga Hildur, takk fyrir frábært framtak og framkvæmd við að stefna ættinni saman. Það er jú alltaf talað um að gera eitthvað en lítið framkvæmt. Stelpur þið eigið hrós skilið, og enn og aftur, TAKK.
Mikið var gaman að hitta ykkur öll. Þetta var ágæt helgi, en einhvern veginn “hristist” hópurinn ekki saman. Auðvitað voru og eru ýmsar ástæður fyrir því, m.a. vegna þess, að fólk hreinlega þekkist ekki. Samskipti og samvera fólks í stórfjölskyldunni eru svo lítil nú til dags. Samskiptin eru ekki heldur mikil í nær-fjölskyldunni minni. Fólk droppar ekki inn í molakaffi fyrirvaralaust eins og í gamla daga. Og ÉG er sko engin undantekning. Margir segja: “þetta er bara svona í dag”. En þarf þetta að vera svona? Það er pæling.
Um helgina rifjuðust upp hjá mér ýmsir skemmtilegir atburðir og atvik sem ég hef upplifað um ævina með ættinni. Frábærir (og minna frábærir), gefandi og þroskandi tímar heima hjá: afa og ömmu, mömmu og Dadda, Bjarna og Grétu, Rögnu og Dúdda, Sverri og Löllu. Svo og margir atburðir og samvera með börnum þeirra allra. Já, í þá gömlu góðu daga þegar…….
En lífið heldur áfram og auðvitað hefur svo rosalega margt breyst í áranna rás. Persónulega finnast mér mannleg samskipti og talað mál skemmtilegri heldur en nútíma rituð samskipti. Eða eins og lykilorðið hér segir: GAMAN SAMAN 1-2-3.
Ég ætla að setja heimsóknar- og eða símatíma til ættingja inn á stundatöfluna mína í haust. Ég hef nefnilega verið að vinna í frestunaráráttunni o.fl. hjá mér undanfarna mánuði með góðra manna hjálp. Og í þeirra orðaforða er ekki til neitt sem heitir að reyna. (Þ.e.a.s. þegar maður setur sér t.d. markmið).
Alla vega, ég hugsa með tilhlökkun til ársins 2010 ef sú hugmynd verður að veruleika að halda ættarmót á Súðavík.
Heyrumst og sjáumst! Kær kveðja, Lísa.
Já og Bjarni minn, takk fyrir framtakið að stofna þessa síðu.








Hæ allir og takk fyrir síðast!!
Lisa mér líst vel á þessa heimsóknatíma eða símatíma! Ég er búin að setja mér markmið…það er að hafa meira samband. Er t.d. búin að setja Örnu á lista yfir þá sem ég ætla að heimsækja innan við ár (já þetta verða að vera raunhæf markmið) búin að fá síman hjá Agnesi og lofaði að vera í sambandi. Svo þið hin….þið verðið á listanum líka
Lisa, það er spurning um að kippa þér bara með austur í Hveragerði þegar ég bruna í kaffi til Örnu og co.
Hlakka til að sjá ykkur flest innan við árs!
Kveðja, Linda
By: Linda Ýr Ægisdóttir on 14. júlí 2008
at 21:15
(heim)sókn er besta vörnin.
Örugglega þurrasti staðurinn frá Skaftafelli til Skagafjarðar þessa helgi. Þegar ég kom yfir Fróðárheiði þá var lemjandi rigning alla leiðina heim og var örugglega búin að vera að allan daginn.
Takk fyrir góðar stundir. Inga … frábær staðsetning
Það verður gefinn sex mánaða fyrirvari fyrir næsta ættarmót. Engin afsökun tekin gild. Drög hafa verið lögð að stífri dagskrá byggða á þáttaröðinni vinsælu “Roots” Hver leikur Kúnta Kinte? Meira um það 6. janúar 2010.
Kv. Helgi
By: Helgi on 14. júlí 2008
at 22:33
takk fyrir mig það var stórskemmtilegt að hitta ykkur öll… verst var að ekki var hægt að fara á kayak vegna veðurs.. ekki að það hafi verið of BLAUTT heldur hefði verið of mikið vagg og velta!
Ég læt myndir hér innan tíðar, er með 180 ca myndir.
Þið hin sem tóku myndir endilega setjið hingað inn ..eða link á myndirnar.
kv.
Ási
By: Ási on 15. júlí 2008
at 8:22
Hæ öll.
Mér fannst stórskemmtilegt að hitta alla þá sem komu og kíktu við á Hellissandi. Ég hef nú aldrei fyrr stoppað hjá Söndurum en þeir eiga þakkir skyldar fyrir gestristnina þessa helgi.
Það er nú einu sinni svo með íslenskt sumar að það er ekki á vísann að róa, ekki frekar en það gefi á sjó hvern dag.
Ef ég man rétt þá hef ég reyndar upplifað einhverja mestu veðurblíðu á Íslandi fyrir nokkrum árum. Og hvar haldið þið að það hafi verið? Í Súðavík. Svo mér líst vel á að stefna fólkinu þangað og róa svo á vélbáti yfir á Snæfjallaströndina í pílagrímsför part úr degi.
Bless í bili.
Bjarni.
By: Bjarni Á on 15. júlí 2008
at 13:45
bara að kvitta og þakak fyrir samverustundina á Sandi. Ég naut þess að hitta ykkur öll.
Það þarf bara að drífa í að panta húsnæði fyrir 2010 í Súðavíkinni svo að ekk iverði upppantað þegar að herlegheitunum kemur
kv. ´Dísa
By: Þórdís on 23. júlí 2008
at 15:35