Posted by: fjolskyldan | 20. júní 2010

Nýir ættingjar

Heil og sæl öll sömul.

Ég er að vinna í uppfærslu á ættartrénu þar sem nýir ættingjar hafa bæst í hópinn frá því síðast. Í sumum tilvikum hefur nafnagjöf ekki enn skilað sér inn í Íslendingabók svo ég hef ekki upplýsingar um þau öll. Í þeim tilvikum þá nægir að senda mér tölvupóst eða breyta sjálf síðunni. Bara að passa uppsetningu hennar.

Bestu kveðjur, sjáumst í júlí.

Bjarni Á.

Posted by: fjolskyldan | 19. júní 2010

Ættarmótið 16. – 18. júlí 2010

Allir á Dalbæ á Snæfjallaströnd.  Heiðrum minningu ömmu og afa.  Kynnumst því lofti, láði og legi sem amma og afi ólust upp í.  Styrkjum ættarböndin, hugsum til genginna, leikum við litla fólkið, en umfram allt, njótum nútíðarinnar.

Tjaldsvæðið opið öllum, óþarfi að panta.  Hægt að panta svefnpokapláss.

Posted by: fjolskyldan | 14. júlí 2008

Hæ folks! Takk fyrir síðast (11.-13.júlí).

Pálína og Inga Hildur, takk fyrir frábært framtak og framkvæmd við að stefna ættinni saman. Það er jú alltaf talað um að gera eitthvað en lítið framkvæmt. Stelpur þið eigið hrós skilið, og enn og aftur, TAKK.  

Mikið var gaman að hitta ykkur öll. Þetta var ágæt helgi, en einhvern veginn “hristist” hópurinn ekki saman. Auðvitað voru og eru ýmsar ástæður fyrir því, m.a. vegna þess, að fólk hreinlega þekkist ekki. Samskipti og samvera fólks í stórfjölskyldunni eru svo lítil nú til dags. Samskiptin eru ekki heldur mikil í nær-fjölskyldunni minni. Fólk droppar ekki inn í molakaffi fyrirvaralaust eins og í gamla daga.  Og ÉG er sko engin undantekning.  Margir segja: “þetta er bara svona í dag”.  En þarf þetta að vera svona?  Það er pæling.

Um helgina rifjuðust upp hjá mér ýmsir skemmtilegir atburðir og atvik sem ég hef upplifað um ævina með ættinni. Frábærir (og minna frábærir), gefandi og þroskandi tímar heima hjá: afa og ömmu, mömmu og Dadda, Bjarna og Grétu, Rögnu og Dúdda, Sverri og Löllu.  Svo og margir atburðir og samvera með börnum þeirra allra.  Já, í þá gömlu góðu daga þegar…….   

En lífið heldur áfram og auðvitað hefur svo rosalega margt breyst í áranna rás. Persónulega finnast mér mannleg samskipti og talað mál skemmtilegri heldur en nútíma rituð samskipti. Eða eins og lykilorðið hér segir: GAMAN SAMAN 1-2-3.  

Ég ætla að setja heimsóknar- og eða símatíma til ættingja inn á stundatöfluna mína í haust. Ég hef nefnilega verið að vinna í frestunaráráttunni o.fl. hjá mér undanfarna mánuði með góðra manna hjálp. Og í þeirra orðaforða er ekki til neitt sem heitir að reyna.  (Þ.e.a.s. þegar maður setur sér t.d. markmið).     

Alla vega, ég hugsa með tilhlökkun til ársins 2010 ef sú hugmynd verður að veruleika að halda ættarmót á Súðavík. 

Heyrumst og sjáumst!  Kær kveðja, Lísa. 

Já og Bjarni minn, takk fyrir framtakið að stofna þessa síðu.

Posted by: fjolskyldan | 14. júlí 2008

Myndir

Takk fyrir síðast allir saman,   það var rosa gaman að hitta ykkur öll.

Við lentum í heljarinnar vindhviðu kasti á leiðinni heim og bíllinn bara hentist til á hinn vegarhelminginn, verð að játa að hjartað sló örlítið hraðar hjá mér og mínum.   Vildi bara hvetja sem flesta að setja inn myndir hér, ég tók td. engar myndir sjálf og væri gaman að sjá eitthvað af þeim sem þið tókuð.

( er ekki hægt að vera með sér myndasíðu hérna ? )

kveðja, Pálína

Posted by: fjolskyldan | 11. júlí 2008

Ættarmótið

Jæja þá styttist í að sjálft ættarmótið skellur á.  Það virðist nú líta út fyrir að verði mini ættarmót því að sjálfsögðu geta ekki allir mætt og ýmsar ástæður fyrir því hjá fólki. En komi þeir sem koma geta og vonandi munum við eiga góða stundir.

Ég, krakkarnir og mamma munum koma á laugardagsmorgninum, mamma fær svo að gista hjá Snævari frænda í Ólafsvík, á meðan við hin hírumst í blautu tjaldi örugglega (ehemm….) ég er ekki útilegu nörd, og mæti með 35 ára Ægistjald til að sanna það !   Spáin er auðvitað rigning,  en á að vera hlýtt.

Hlakka til að hitta sem flesta !  kveðja, Pálina

Posted by: fjolskyldan | 9. júlí 2008

Bjarna Þóris börn

Þetta er mynd af Ægir Mána og Álfrúni Auði

Posted by: fjolskyldan | 8. júlí 2008

Myndir af mínum grísum

Vonandi tekst mer að setja inn mynd af minum yngri tveim. kveðja Pálina

Róbert Orri og Brynja Bjarney

Róbert Orri og Brynja Bjarney

Posted by: fjolskyldan | 8. júlí 2008

Snæfjallanefið

Talandi um nefið.  María Maack sagði stundum við mömmu þegar hún birtist hér áður fyrr, “þarna kemur Snæfjallanefið”.
Þannig að nefið hefur svosem þekkst áður.  Ekki veit ég hvort það hafi komið sterkar frá afa eða ömmu.  Það þarf að rannsaka gamlar myndir til að skera úr um það.  Reyndar var föðurafi ömmu, Jón Kolbeinsson og móðurafi afa, Jakob Kolbeinsson  albræður.
Hér áður fyrr var mamma sögð sláandi lík Ragnhildi móður afa.  Einhvern tímann heyrði ég að eldri kona hafi undið sér að Ásu systur fyrir löngu síðan og sagt hreint út við hana að hún væri greinilega ættuð af ströndinni, svo sláandi lík fannst henni Ása vera einhverri sem hún hefði þekkt þar fyrir löngu.  Ása hlýtur að muna hvernig það var, ég er kannski að skálda eins og stundum áður :-)

Ragnhildur var sögð glæsileg kona og hnarreist í söðli.  Hún lést aðeins 29 ára, rúmu ári eftir að afi fæðist.  Guðmundur langafi hafi tekið þann missi mjög nærri sér og varð varla samur lengi á eftir.  Sigurður afi ólst upp undir verndarvæng föðurbróður síns, Sigurðar Jósepssonar á Sandeyri.  Hann var útgerðarmaður með þó nokkur umsvif þó gengið hafi á ýmsu.  Ráðskona Sigurðar, Ingibjörg, fóstraði afa.  Miðað við þá útgerðarmenn að vestan sem heyrst hefur í gegnum árin, þá kemur nú ekki á óvart að Sigurður Jósepsson hafi þótt það hin mesta firra þegar Sigvaldi Kaldalóns vildi styðja afa til tónmenntar eða eins og Þórdís sagði, honum væri nær að berja beinin oní beljurnar.

Mamma mundi ekki eftir þeirri sögu að afi hafi sótt ömmu út í Æðey en staðfesti að amma hefði verið þar um tíma.  Eitthvað rámaði hana samt í að hafa heyrt að foreldrar ömmu, Bjarni sérstaklega, hafi ekkert verið of hrifin af því þegar þau voru að draga sig saman.  En afi var skapmaður og alveg trúandi til þess að hafa öslað í Æðey eftir ömmu sagði mamma.

Hvort hér er allt satt eða logið get ég ekki svarið :D

Kv. Helgi

Posted by: fjolskyldan | 8. júlí 2008

Nýrri myndir af Klöru og Tómasi

Hér eru nýrri myndir af Klöru og Tómasi.

 

Klara

Klara

 

 

Tómas

Tómas

Kveðja

Posted by: fjolskyldan | 8. júlí 2008

“Litlu” strákarnir okkar

Hér má sjá strákana okkar Lilju og tengdadæturnar. Litlu strákarnir okkar eru nú reyndar orðnir fullorðnir, Brynjar 23 og Össur 20. Það er æði langt síðan þeir uxu okkur yfir höfuð, en það er nú reyndar bara hluti af þróun. Afkvæmin bera af foreldrunum. Þannig er það að minnsta kosti í hestamennskunni.

Sem sé, á myndinni má sjá frá vinstri, Ingu hans Brynjars. Brynjar Smára, Hólmfríði hans Össurar og Össur. Þegar börnin eru flogin úr hreiðrinu og engin barnabörn í sjónmáli þá fara foreldrarnir bara í hundana. Ferfætlingana sjáið þið um helgina, nema kisu sem verður heima að passa húsið.

Við hlökkum mikið til að sjá ykkur öll á laugardaginn og gaman væri nú að safna öllu liðinu saman á eina stóra mynd sem síðan fengi verðugan sess á síðunni.

Bjarni og Lilja.

Older Posts »

Flokkar

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.